Um okkur

Ásmundur Gunnarsson
Ásmundur er sérfræðingur í klínískri sálfræði. Hann hefur víðtæka reynslu af greiningu og meðferð við þráhyggju- og árátturöskun (OCD), líkamsskynjunarröskun (BDD) sem og lágu sjálfsmati og þunglyndi. Auk þess má nefna kvíðaraskanir á borð við félagsfælni, heilsukvíða og fælnivanda.
Fyrirspurnir og vísanir berist til asmundur@kvidaklinikin.is

Tinna Þorsteinsdóttir
Tinna er klínískur sálfræðingur með víðtæka reynslu af greiningu og meðferð kvíðaraskana. Hún hóf feril sinn í Svíþjóð árið 2011 og hefur á síðustu árum sérhæft sig í meðferð við kvíðatengdum vanda, svo sem þráhyggju- og árátturöskun, heilsukvíða, áhyggjuvanda, kvíðaköstum og þunglyndi.
Tinna veitir auk þess meðferð við svefnvanda.
Fyrirspurnir og vísanir berist til tinna@kvidaklinikin.is

Dr. Ólafía Sigurjónsdóttir
Ólafía er klínískur sálfræðingur með víðtæka reynslu af meðferð kvíðaraskana eins og ofsakvíða, félagsfælni, frammistöðu- og prófkvíða, heilsukvíða, áhyggjuvanda og lágt sjálfsmat.
Ólafía hefur einnig sérhæft sig í meðferð þráhyggju- og árátturöskunar (OCD) og tengdra vandkvæða s.s. líkamskynjunarröskun (BDD), kækir/Tourette og hárreyti- og húðkroppsárátta.
Meðferðaráherslur: Hugræn atferlismeðferð, Berskjöldunarmeðferð (ERP), Acceptance and Commitment Therapy (ACT), Habit Reversal Training og EMDR.
Fyrirspurnir og vísanir berist til olafia@kvidaklinikin.is

Tómas Páll Þorvaldsson
Tómas er klínískur sálfræðingur með víðtæka reynslu af greiningu og meðferð kvíðaraskana svo sem félagsfælni, þráhyggju- og árátturöskunar (OCD), heilsukvíða, ofsakvíða, almennri kvíðaröskun og fælnivanda. Tómas hefur einnig víðtæka reynslu af greiningu og meðferð við lágu sjálfsmati og þunglyndi.
Fyrirspurnir og vísanir berist til